Sunday, October 7, 2012

Weekend!

Eftir skólann á fimmtudaginn fór ég og Willem (holland) á Squirrel hill sem er ein önnur verslunargatan hérna, fórum svo á Starbucks, það var svo sjúúklega heitt! en svo labbaði ég í skólann til host systkina minni því Victor var að spila fótbolta leik, ég hélt að ég myndi detta niður dauð á leiðinni,klárlega einn af heitustu dögunum síðan ég kom hingað! Þegar ég mætti á leikinn voru Sharon og Alex mættar, og Alex sagði mér þær sorgar fréttr að þau voru að fá niðurstöður úr blóðprufu sem hún fór í um daginn þvi hún var buin að vera með viðbjóðslegan hósta geðveikt lengi og það kom í ljós að hún er með ofnæmi fyrir hundinum :( en sem betur fer þurfum við ekki að losa okkur við hann , heldur þarf hún bara að hætta að sofa með hann uppí hjá sér. Svo þegar við komum heim fórum við Alex uppá Walnut Street að kaupa okkur bestu smoothe sem ég hef á æfi minni smakkað, en svo fór ég bara að læra heima, sem tók eiginlega allt kvöldið, svo fór ég bara að sofa.

Á Föstudaginn eftir skóla fór ég með Internasional Clubnum frá skólanum út að borða, á leiðinni komum við að slag. Slagurinn hafði byrjað inní strætó, svo stoppaði strætóin og þá fóru allir út og heldu áfram að slást, ég sá einn gaur með risa skurð á hendinni eftir glerflösku sem hafði verið kastað í hann! svo kom lögreglan en þá voru allir búnir að hlaupa í burtu. Og þessi slagur var eiginlega hliðina á veitingastaðnum þar sem við vorum að fara borða og við vorum að bíða fyrir utan staðin á meðan að fólkið inní gerði borðin tilbúin því við vorum svo mörg, og á meðan kom lögga til okkar og spurja okkur hvort við hefðum verið í slaginum og var ekkert smá reiður, en kennarinn sem var með okkur bjargaði okkur og fór að tala við lögguna. En við fóru að borða á kínverskum veitingastað, og eins kaldhæðnislegt og þetta hljómar að þá fékk ég versta sushi sem ég hef á ævi minni smakkað! En svo kom ég heim og chillaði bara einhvað smá og ætlaði svo að fara í sleepover sem að Asma, stelpa sem er með mér í heimilisfræði hafði boðið mer í, en ég gat ekki farið því ég var ekki með far, því þegar ég ætlði að fara voru komnir gestir og þau voru með svona semi matarboð, þannig ég var bara heima, en ég var ekki á neinum bömmer yfir þessu , mér fanst frekar skrítið að fara gista hjá stelpu sem eg hafði aldrei hangið með. Svo eftir matin fóru host fjölskyldan og gestirnir í messu og ég var bara heima, horfði á Green mile, shit hvað það er góð mynd! en svo komu þau heim um 8 leitið og ég og host systir mín hengum bara og gerðum einhvað sniðugt.Svp um 11 leitið kom stelpa frá NY til okkar, hún heytir Gabey, hún bjó hjá host fjölskyldunni minni fyrir 10 árum og er í heimsókn yfir helgina

Á laugardaginn fór ég í hádegismat með stelpu sem ég var að kinnast og heitir Sharmaine, hún er rosa fín, við fórum á mexikanskan veitingastað, og tókum svo búðarrölt um Walnut street, svo kom ég heim um 4 leitið því ég ætlaði á fyrstu körfubolta æfinguna mína klukkan 5, en svo þegar ég og Sharon mættum á staðinn var enginn æfing, þetta var einhver voðalegur miskilningur, en æfingar byrja ekki fyrr en eftir 2 vikur, þannig þangað til ætla ég að fara í gym sem host fjölskildan mín er með aðgang að frítt! ekkert smá næs! en já svo borðuðum við kvöldmat og Sharon og David fóru í einhvað boð til vinafólks og við krakkarnir vorum heima að gera einhvað sniðugt.

Í dag, (sunnudag) fórum við  ég, Sharon og Alex á verlunarsvæði sem heitir Waterfront, fórum í manicure , elska að fara í svoleiðis! svo fórum við í smá buðarrölt og enduðum í einni RISA stóra halloween store og ég fekk nokkrar hugmyndir um hvað ég ætla vera á halloween en er ekki enþá buin að ákveða. Svo fórum við bara heim og ég fór á Walnut street, verlsaði mér einn bol, kíkti svo í apple búðina, að kíkja betur á mac tölvur, er að pæla í að kaupa eina, þær eru svona heilmingi ódýrari en heima! svo erum við bara buin að vera heima því það er ógeðslegt rigníngarveður úti, og vinkona alexar er hérna og þær eru að fara gista þvi það er ekki skóli á mánudaginn.

Svo öll næsta vika er HOMECOMING vika í skólanum :D það er svona eins og opnir dagar í FNV allir að klæðast eh búningum og einhvað og svo er einginn skóli á föstudaginn, um kvöldið er homecoming game, sem er football game eða þúst rúbbí, svo á sunnudaginn er HOMECOMING :D en það eru ekki margir frá mínum skóla að fara :( þeð finnst eiginlega öllum þetta frekar lame, en ég ætla samt að fara með eh vinum. En svo er víst einvhað annað ball hérna sem er miklu skemmtilegta og vinsælla sega allir þannig eg hugga mig við það :))

þangað til næst! 
Ísabella

3 comments:

  1. Hæ það er greinilega nóg að gera hjá þér,gaman að fylgjast með takk fyrir þetta Blogg og góða skemmtun á homecoming
    Koss og knús kveðja mamma

    ReplyDelete
  2. Svo gaman að lesa elskan mín!!
    knús til þín og have fun á homecoming! :*

    ReplyDelete
  3. Feit õfund herna megin :D langar ad profa ad fara a svona homecomig! Thu bara skemmtir ter fyrir mig i leidinni ;) en eg hlakka til ad sja mynd af ter i halloween buning :D knus og kossar:**

    ReplyDelete