Wednesday, December 26, 2012

Amerísk Jól!

Gleðileg Jól & Farsælt Komandi ár!   Að upplifa jólin hérna í Ameríku var mjog gaman en á sama tíma mjög erfitt, en það fékk mig bara til að átti mig á því hvað mér þykir vænt um allt heima og meta jólin mun betur og maður áttar sig líka á því hvað maður er heppin að eiga góða fjölskildu og vini, ekki endilega bara með að eyða jólunum svona í burtu , heldur allan þennan tíma sem ég er búin að vera hérna hef ég áttað mig á hvað ég er heppin og byrjaði að meta allt mun betur og virði ísland svo miklu meira, þetta virkilega fær mann til að opna augun og átta sig á hlutunum, svo að ef þið hafði tækifæri til að gera þetta , fara sem skiptinemi, þá mæli ég alveg 100% með því, þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið, þótt þetta sé scary að fara svona í burtu í langarn tíma að þá gerir þetta mann að miklu sterkari persónu fyrir vikið, og það hafa alveg komið tímar þar sem mig langar heim og hugsaði bara afhverju ákvað ég að fara og finnst ég vera að missa af svo miklu heima, en ef maður hugsar um það að þá mun ekkert breytast á næsta ári, allir þessir viðburðir munu gerast aftur eftir ár.
Mér fannst Þorláksmessa mjög erfið, þá fyrst held ég að ég hafi áttað mig á því að ég væri í alvörunni ekki að fara vera heima um jólinn, grenjaði svoleiðis úr mér augun, en elsti bróðir minn kom inni herbergi og knúsaði mig og var rosa yndislegur, þannig svo þurfti ég að ná mér niður því það var körfubolta æfing. Eftir æfingu kom ég heim og bakaði með hostforeldrum mínum, við vorum að búa til einhvað sem heitir "develed eggs" það var ekkert neitt rosa gott.
A Aðfangadag fór ég í verslunarferð með hostpabba mínum og krökkunum til Pittsburgh, host mamman var að vinna! eftir að við komum heim skypaði ég við mommu,pabba og ömmu sem voru að borða jólamatinn, en það entists bara í nokkrar mínótur það sem það var alltof erfitt fyrir mig og ég ákvað að drífa mig í kirkju með host fjölskildunni, og ekkert venjulega kirkju, hálfgerð rokk kirkja , það var meira sungið heldur en talað, og brjalað ljósasjó, rafmagnsgítar og trommusett og læti, haha frekar furðulegt, en gaman að fá að upplifa þetta. Svo komum við heim og þá skypaði ég aftur við mommu og pabba , edda systir var þar í þetta skipti líka , sem var bara æði skypuðum á dágáðan tíma, þau heilsuðu upp á fjölskylduna og svona, svo var borðað íslenskan jólamat, eða bara hamborgarahrygg og sykraðar kartöflur. Þrau höfðu aldrei heyrt um sykraðar kartöflur fyrr , en þeim fannst það bara mjög gott. Host amman og kallin hennar voru í mat og afþví að þau voru í hemsókn þá fengum við að opna gjafirnar frá þeim eftir matinn, það var ekkert smá, hvert barn fékk í kringum 4-6 gjafir frá henni! en eftir að við opnuðum pakkana fórum við að sofa. Á Jóladag fékk ég að sofa til 9, þá kom littla dúllan inn til mín og bað mig um að koma niður því við værum að fara opna gjafir, sem tók um það bil til klukkan 1, Jason bakaði gúrme morgunmat handa okkur öllum, mjög næs. Eftir að við vorum búin að þessu öllu þá fórum við í göngutúr um bæginn. Svo um kvöldið fórum við í mat til systur host mömmu minnar og við borðuðum PASTA!! á jóladag. Þar opnuðum við svo enþá fleiri gjafir.

Svo í dag, annan í jólum er bara venjulegur dagur. Ég fór á körfubolta æfingu, host mamma mín er í vinnuni. Í kvold er ég, Natalie og Kim að fara á Harlem Globetrotters sem er hálfgerð körfubolta sýning þar sem þú sért gaura gera allskonar kúl tricks, Ég er mega spennt fyrir því. Það byrjaði að snjóa hérna í morgun og allir eru að FRÍKA ÚT!  guð minn góður, það er smá snjór á jörðinni og það halda sér allir heima því þau þora ekki út! 
Svo eru leikir á morgun og hinn þannig það er brjálað að gera hjá mér í jólafríinu.

Her eru jólamyndir eftir Jason hostpabba minnn :

Kendall,Christian,Ethan,Will,Ég & Meredith



Gleðileg Jól :)


Ísabella st. 

Þangað til næst. Ísabella 



Saturday, December 15, 2012

Brjálað að gera!

Afsakið blogg leisið upp á síðkastið, það er aldeilis búið að vera brjálað að gera síðan ég kom heim frá CR, sem ég mun blogga um seinna, það mun verða frekar langt. Ég er svona eiginlega komin með rútínu yfir dagana núna, Skóli, svo strax eftir skóla er körfubolta æfing, svo heim í sturtu,læra og sofa, Ameríkanarnir eru ekkert að grínast með heimanám,svo hefur maður alltaf bara einn dag til að gera allt því allir dagar eru eins. Stunda taflan mín er svona :
1.Study Hall
2.Civics
3 Prop/Stad (stæ)
4. Ecology
5.Enska
6.Study Hall (þri,fim,fös) / Gym (mán,mið)
7. Lunch
8.Sports and Entertainment
9.Psychology

Svo ganga körfubolta æfingarnar mjög vel, við erum búnar að spila 5 leiki og búnar að vinna alla, svo núna í næstu viku eru 3 leikir, mánudag,þriðjudag og fimmtudag.
Annars er þessi helgi búin að vera róleg, það var útileikur á föstudaginn sem við unnum 41-46, svo kom ég heim og fór með fjölskyldunni minni í Christmas Party hjá nágrannum mínum þar sem allir voru klæddir eins og álfar, frekar fyndið, ég klæddi mig nu ekki sem álfur.
Á Laugardaginn svaf ég út, í fyrsta skipti í langan tíma! stuttu eftir að ég vaknaði fórum ég og Erica, sem er host mamma mín ,  og Nancy sem er host amma mín, hún og maðurinn hennar eru búin að vera í heimsókn hjá okkur síðustu 5 daga, sem er bara búið að vera yndislegt, en allavega,þá fórum við að horfa á systudóttur Ericu képpa á klappstíru móti! Guð minn góður hvað þetta var furðulegt, þegar ég labbaði inn í húsnæðið sem þetta var haldið, þá sá ég bara glimmer og krulluð hár útum allt og littlar stelpur kaf-málaðar, svo þegar ég labbaði inn í képpnissalin sjálfan ,þá fékk ég nú bara sjokk,mér leið eins og ég væri komin inn í "Bring It On" mynd, þetta var nákvæmlega eins og í bíómynd, RISA stór svið, með brjálæðislega miklum ljósum, og á sviðinu stó með risa stöfum nafnið á keppnin, svo var allt morandi í klappstírum og mömmum sem voru í bolum sem stóð á "Cheer mom" með glansandi stöfum. En þetta var samt rosa flott að sjá þessar stelpur képpa, þetta er ekkert auðvelt, og "frænka" mín sem var að képpa gekk mjög vel, held ég þótt ég sé ekki viss því þegar hún var búin að keppa og við fórum að spjalla við hana voru fullt af stelpum í liðinu hennar grátandi, en samt voru þær að fara taka við verðlaunum, ég skildi það þannig að einhvað hafi farið úrskeiðis en samt unnu þær, held ég.. ég hafði ekki hugmynd um hvað var í hangi, of mikið drama fyrir mig. Ég vildi svo að ég hefði getað tekið myndir af þessu en þar sem myndavélin á símanum mínum virkar ekki, og það er eina myndavélin sem ég átti, var það ekki hægt,og auðvitað þegar mig vantar myndavél gerast hlutir sem mig langar að taka myndir af. Um kvoldið var svo haldin Thanksgiving dinner þar sem við vorum CR á thanksgiving og átum taco í kvöldmatinn þá. Guð minn góður hvað maturinn var góður! Og allir komu í heimsókn, systir host mömmu minnar og fjölskyldan hennar, og mamma Ericu kom líka og svo náttúrulega foreldrar host pabba míns. Yndislegt kvold í alla staði!
Á morgun mun ég sennilega bara vera læra heima þar sem það er hellings heimavinna og ég held ég sé að fara í 3 próf í næstu viku! 
Annars er Christmas brake alveg að verða að veruleika og þá kanski finnur maður tíma til að gera einhvað sniðugt með vinkonunum þótt svo að maður fái ekki brake frá körfuni, (sem ég er alls ekkert að hvarta yfir) en brake frá skólanum verður lovley! 

Svo eru elsku Cali stelpurnar mínar að fara heim á morgun, ég öfunda þær nú pínu að vera fara heim, heimþráin segir nú stundum alveg til sín hérna, þetta er algjör tilfininga rússíbani. En ég vona að þær komist heilar að húfi heim á elsku krókin. Svo á ég von á nokkrum pökkum hingað til mín ég er að farast af spenningi yfir þeim. Og þið heima eigið kanski von á jólakortum aðeins eftir jólin, ég var ekki nógu snögg með þettað í póst! ( óskipurlagða ég,sorry)
Ekki langt blogg að þessu sinni, en ég er að vinna í CR blogginu,það verður langt ;-)



Svo ætla ég aðeins að herma eftir Rakel minni og setja smá quotes hérna inn. 

"The trouble occurs when the fear holds you back, preventing you from experiencing life to the fullest"