Sunday, October 14, 2012

Homecoming frestað!

Á Mánudaginn var bara venjulegur dagur í skólanum, svo kom ég heim og hékk bara í leti, ég var svo ótrúlega þreytt einhvað að ég fór bara að sofa! gerðist ekkert merkilegt yfir daginn nema það að það var Homecoming vika og krakkarnir í skólanum áttu að klæðast einhverju klikkuðu outfitti, eins og t.d ein strákur sem var að labba fyrir framan mig upp stiga í skólanum þegar ég kom um morguninn var í stuttbuxum yfir buxunum, og ég bara what afhverju er hann svona? svo mætti ég öðrum þegar ég var að labba í skápinn minn sem var í einhverju brjáluðu outfitti með blikkandi ljós útum allt og ég fattaði ekkert, ég var svoo þreytt og var búin að stein gleima að það væri homecomingvika!

Á Þriðjudaginn fór ég í skólann, og það var twin-day, þá áttiru að finna þér félaga og þið áttuð að klæðast alveg eins, ég tók nú ekki þátt í því. Eftir skóla prufaði ég að fara í fyrsta skipti í ræktina sem ég var buin að sega ykkur frá sem ég fæ að fara í frítt, hún er ekkert smá flott þannig ég er bara í góðum málum, það tekur mig svona 10-15 min að labba úr skólanum og í ræktina, svo eftir ræktina þarf ég að labba heim og það tekur svona 30 min, þannig ég er bara í góðum málum, þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því að koma rúllandi heim. Svo Þegar ég kom heim fór ég bara að læra því það var stæ próf á miðvikudeginum, en svo var auðvitað horft á new girl fyrir svepnin

Á Miðvikudaginn var superhero day í skólanum sem segir sig svoldið sjálft. Í 8 og 9 period var svo peprally fyrir fótboltastrákana sem voru að fara keppa í homecomingleiknum á föstudaginn. Það var mjög gaman, svo eftir skóla fór ég í ræktina og svo kom ég heim fór að gera einhvað með Alex en ég get bara ómögulega munað hvað það var.

Á Fimmtudaginn var half day, við vorum búin í skólanum 12:36 þannig eftir skóla fór ég með Willem,John,Juuso,Fabien og Elinu að verla á verslunarsvæði hérna sem heitir The Waterfront það var mjög gaman, en svo þurftu Elina og Fabien að fara en okkur hinum langaði ekki heim strax þannig við fórum bara í bíó kl 3 um daginn haha, sem var mjög fínt því miðinn kostaði bara 5 dollara, það er ódyrar að fara í bíó yfir daginn, plús það að það var enginn í salnum, en við fórum að sjá Taken2 og vá hvað hún er góð !! Svo fórum við bara heim og þegar ég kom heim fór ég með alex upp á Walnut street.

Á Föstudaginn var ekki skóli, en Alex vakti mig klukkan hálf átta til að biðja mig um að gera í hárið á henni fyrir skólann, algjör dúlla! en svo fór ég bara að sofa og vaknaði aftur kl 10 því ég og Sharon vorum búnar að ákveða að fara í Apple búðina og kaupa tölvuna mína :-) en svo þegar við komum í búðina og eg ætlaði að fara borga þá tóku þau ekki við kortinu minu, þannig ég þurfti að fara heim og allurdagurinn fór í það að reyna redda þessu blessaða korti, sem gékk síðan ekki upp þannig ég endaði með því að gera ekkert sérstakt yfir daginn. Um kvöldið var svo homecomeing leikur, og ég hitti Willem á starbucks og við fórum saman á leikinn, þar hitti ég svo Sharmaine vinkonu mína og við sátum hjá henni og það var ekker smá gaman að sjá svona high schook fótbolta leik ! Svo þegar ég kom heim var heitipotturinn komin og við fórum öll í heitapottinn.

Á Laugardaginn svaf ég út og þegar ég vaknaði fór ég aftur í Apple búðina og gat loksins keypt mér tölvuna! þannig yfir daginn var ég bara að leika mér og skoða nýju tölvuna, svo klukkan 4 þá sagði Sharon mér að Homecoming hefði verið frestað! því að "the water sistem in the school broke" þannig ekkert homecoming fyrr en eftir viku. En í staðinn fór ég og Willem með Victor og Gabriel í svona Halloween tívolí! það var geggjað!! zombear að labba út um allt og bregða fólki og klikkaðir rússíbanar ! verst að ég steingleimdi að taka myndir.Klárlega eitt skemtilegasta sem ég hef gert.

Í dag (Sunnudag) svaf ég út og þegar eg vaknaði fór ég bara að læra heima, tók svo skype við mömmu og pabba sem er alltaf jafn yndislegt ;* svo fórum ég, Alex og Sharon með Jessie (hundurinn) í svona dogpark, sem var mjög kósý því það er ekkert smá heitt í dag! við sáum líka brúðkaup, ótrúlega fallegt, en svo kom ég heim , kláraði að læra og fór svo með Alex upp walnut street og hún keypti sér peysu, en ég heldi að ég verði að bíða í smá tíma þangað til að ég fari að versla mér meiri föt! svo er ég búin að vera ekkert smá löt í allan dag að eg nenni eiginlega ekki að gera neitt! á planað skype date við huldu mín á eftir og hlakka svo til !


Þangað til næst,
Ísabella


3 comments:

  1. Vaáá æðislegir hlutir sem þú ert að upplyfa! :D
    Hlakka til að lesa meira :D

    ReplyDelete
  2. Hæ gaman að heyra hvað allt gengur vel spennandi að heyra hvernig homcoming verður þegar það verður haldið. koss og knús Mamma

    ReplyDelete