En annars var helgin mjög róleg, á Föstudaginn fór ég eftir skóla í svona klúbb sem er tengdur skólanum og heitir Dice International Club, Þar kinntist ég aðeins af fólki og eftir klúbbin fór ég og Willem (holland) og host bróðir hans og Juuso (finnland) á Starbucks að chilla bara svo sótti hóst mamma mín míg og ég fór bara heim, svo um kvöldið fórum við öll í bíó á mynd sem heitir Pitch Perfect, og djöfull sem hún er fyndinn, hef ekki séð svona fyndna mynd lengi!
Á Laugardagin svaf ég út, ég var svo uppgefin eftir þessa tvo crazy daga í skólanum. Þegar ég vaknaði og var búin að gera mig til þá fór ég með host pabba mínum að kaupa amerískt símkort í símann minn, þannig að ef einhver vill ná á mér þá er númerið mitt 412-889-5579, ég sá nokkur Amish fólk á leiðinni þegar við keyrðum í gegnum svona sveitamarkað, það var mjög skrítið. Svo eftir það chilluðum við bara heima, svo fóru host foreldrar mínir í mat til vinafolks og ég og systkini mín vorum heima, pöntuðum pitsu og höfðum það náðugt yfir mynd :)
Á Sunnudaginn keyrðum við útí sveit í svona klukkutíma og fórum að skoða gamlar Indíánaslóðir, það var mjög fróðlegt og gaman :) svo þegear við komum heim var eiginlega bara komið kvöld og Sharon fór beint í það að elda kvöldmat, á með fóru ég og systkini mín á Walnut street í einhverja búð að kaupa Halloween dót, svo þegar við komum til baka byrjuðum við aðeins að skreyta, það var mjög gaman, haha! en við eigum eftir að fara með David í einhverja stærri Halloween búð að kaupa fleira dót. Svo komu amman og afinn í heimsókn og borðuðu kvöldmat með okkur.
Á mánudaginn var bara venjulegur skóladagur, þurfti aðeins að breyta einhverjum tímum, þannig að núna er ég komin með fullkomna stundatöflu ! ég er að taka:
Forensic sicence , þá erum við að læra hvernig er hægt að ransaka og nota sönnunargög á vettfangs glæps, eins og þegar það er búið að fremja morð.
Forensic sicence , þá erum við að læra hvernig er hægt að ransaka og nota sönnunargög á vettfangs glæps, eins og þegar það er búið að fremja morð.
Matreiðsla, ég man ekki orðið á ensku og nenni ekki niður að ná í stundatöfluna mína. En þetta er samt ekki matreiðsla eins og heima, heldur erum við bara að lesa í bókum um öryggi í eldhúsinu og allskonar svona.
Visual arts, Þar er ég bara að teikna alskonar sniðugt, kann ekki að útskýra!
Ceramics, þar er ég að búa tila alskonar hluti úr leir, aðalega samt skálar og svona
Algebra, segir sig sjálft. Bara stærfræði.
Us.History, þar erum við að læra um bandaríska sögu, núna erum við að læra um þrælana sem voru í S og N ameríku.
Psychology, sálfræði.Núna erum við að læra um heilan, það er mjög áhugavert!
Enska, erum að fara byrja á einhverjari bók, sem snýst um nornir og einhvað álíka
Ég var mjög stressuð fyrir þessum degi því ég þurfti að taka school bus, en það reddaðist allt saman, en já svo eftir skólan var ég bara að chilla.
Á Þriðjudaginn fór ég í skólan, svo eftir skólann fór ég og Alex á Walnut street og ég fór í Apple að skoða tölvu, því mig bráðvantar nýja tölvu! og Alex keypti svon 2 kíló af nammi,svo chilluðum við bara og fórum heim og borðuðum búrme Burrito sem David bjó til og horfðum svo á New Girl og átum allt nammið sem við keyptum fyrr um daginn.
Svo í dag fór ég bara í skólann voða basic, nema á leiðinni heim voru tveir krakkar, eða þúst unglingar að slást, einhvað fólk frá ghettoinu, ég var freeekar smeik! en svo kom ég bara heim og er að blogg núna ásamt að chilla með Alex systur. Svo næst fer ég bara að læra heima í stæ því það er annað próf á föstudaginn og ég var btw í stærfræði prófi í gær (þriðjudag) en það gekk samt bara vel. Svo er líka sálfræði próf á föstudaginn svo það er nóg að gera! Svo kom systir Davíðs til okkar í gærkvöldi svo að ég held að við séum að fara út að borða í kvold
Þangað til næst, Ísabella !
Ps. það er hægt að klikka á myndirnar til að stækka
Borðstofan
Risa fiskabúr
Eldhús
1 hæð
1 hæð
1 hæð
1 hæð
1 hæð
1 hæð
1 hæð
1 hæð
1 hæð
búnar að skreyta fyrir Halloween!
Basic skólastofa
stærfræðibókin mín
gatan mín
gatan mín
fyrir framan húsið
fyrir framan húsið
fyrir framan húsið
okkur fannst ekkert leiðinlegt að versla dór fyrir Halloween!
Þetta er ekkert smá hús sem þú býrð í haha!
ReplyDeleteKveðja frá Ítalíu ;)
Ekkert smá flott hús sem þú býrð í Bella !
ReplyDeletevonandi er lífið ljúft þarna úti,gaman að fylgjast með þér :)
hafðu það sem allra best:*
x
Þetta lítur ekkert smá vel út hjá þér elsku kerlingin mín! Gott að heyra að þér líður vel :-)
ReplyDeleteKveðja, þín uppáhalds Kolla
Ekkert smá gaman að fá að fylgjast með þér :D
ReplyDeleteÞetta hljómar allt svo fáránlega spennandi hjá þér :)
Haltu endilega áfram að blogga og setja inn myndir
:*
-Perla
hahahaha Amish fólkið :D man nú vel eftir því þegar ég var að segja við þig að þú myndir lenda hjá þannig fólki :D
ReplyDeleteen já húsið er glæsilegt :D ekkert smá flikki!!
öfunda þig feitt að fá að upplifa halloween í USA hlýtur að vera geðveikt :D
en alltaf jafn gott að heyra í þér ljúfan og við tökum annað skype-date mjög bráðlega :D i need to tell you some shit :D
en já ég slæ kannski á þráðinn til þín, aldrei að vita :D
xoxo
Jæja held að þetta sé loksins að ganga að comenta hjá þér það er ekki búið að vera lítið bras að finna út hvernig það er gert en með hjálp hennar yndislegu Kristveigu sem með ómældri þolinmæði hefur leiðbeint mér aftur og aftur , en svona er það sumir þurfa bara meiri tilsögn en aðrir. En Ísabella mín það er rosalega gaman að lesa bloggið þitt og sérlega gaman að fá myndir ég heyri á öllu að það er bara snilld að hafa verslunargötu í göngufæri. Og skólinn hljómar bara spennandi. En hvað varð um spænskuna? Koss og knús frá okkur elskum þig kveðja mamma og pabbi
ReplyDelete