Thursday, September 27, 2012

fyrstu dagarnir

Jæja þá er ég loksins komin með millistykki til þess að geta hlaðið tölvuna mína, þannig hérna kemur fyrsta bloggið.

Fimmtudagurinn.

átti rólegan dag með mömmu og pabba í Reykjavík, fór svo í mat til ömmu  og brunaði svo til Keflavíkur um 2 leitið, svo var komið að því að kveðja mömmu og pabba, og það er eitt það erfiðasta sem ég hef gert, ég grenjaði úr mér augun, og hélt áfram að grenja meðan ég var að fara yfir í tollin, allir störðu á mig eins og ég veit ekki hvað. En svo afþví að ég var svo heppin að fá að ferðast með Saga Class, þannig ég fór og beið í einhverju sérstöku rými fyrir Saga Class farþega, þar var allskonar frír matur mér til mikillar gleði, öll útur grenjuð. Svo labbaði ég að hliðinu mínu og beið þar í svona hálftíma, þar hitti ég mann sem var líka að fara til Pittsburgh , ein ótrúlegt og það er, það var mjög furðulegt, við spjölluðum smá. Svo fór ég bara uppí vél, það tók rúma 6 tíma að fljúa, svo lenti ég í NY og var ekkert smá stressuð að fara í gegnum landamæraverðina,var svo stressuð um að hafa filt eyðublöðin sem við fengum í flugvélinni einhvað vitlaust út, en flugfreyjurnar hjálpuðu mér þannig það var allt í góðu, og ég lennti á mjög næs landamæraverði og allt gékk bara vel svo þurfti ég að bíða eftir töskunum mínum í svona 40 mínótur, svo loksins komu þær og ég ströglaðist útur flugvellinum með tvær risa töskur og eina ótrúlega þunga í handfarangri. Á móti mér tók svo strákur frá AFS og fór með mig á hótel þar sem ég hitti aðra AFS krakka kinntist 3 krökkum frá Belgíu, ein af þeim var herbergisfélaginn minn Margot og tveir aðrir strákar, en ég man ekki hvað þeir heita, en við borðuðum öll saman kvöldmat, einvhern viðbjóðslegan hamborgara! en svo fór ég bara að sofa því ég þurfti að vakna kl 5:30 næsta dag til að fara á flugvöllinn til að komast yfir til Pittsburgh.

laugardagur

 Þegar ég kom á flugvöllin voru báðar töskurnar mínar of þungar og ég fór í brjálað panikk og vissi ekkert hvað ég átti að gera en það kom þarna AFS manneskja að hjálpa mer að setja einhvað í handfarangur og svo þurfti ég að borga 60 dollara í yfirvigt haha! svo var 40 mínótna seinkunn á vélinni minni, en loksins lenti ég í Pittsburgh og þar tóku host foreldrar mínir á móti mér og við fórum heim, þar hitti ég Alex systur mína og þau sýndu mér húsið sem er btw riisa stórt, um daginn þá heirði ég í þeim tala saman en hafði ekki hugmynd um hvar í húsinu þau voru, en já svo sýni hún mér herbergið mitt og svona, ég kom mér fyrir og svo fórum við og borðuðum mat, svo fór ég að sofa því ég var svo þreytt svo um kvöldið tókum við göngutúr um kverfið og fórum út að borða, svo fórum við bara heim , en ég og host pabbi minn fórum að sækja littla bróðir minn úr einhverjari ferð sem hann var í. svo fór ég bara að sofa.

sunnudagur.

Ég helt áfram að koma mér fyrir og fór svo með host mömmu minni , bróður og systur að versla í matinn, svo fórum við heim fór ég með systkinum mínum að skoða laugarveginn hérna og ég chillaði bara einhvað, svo seinna um daginn fór ég með host mömmu minni og systur að fá manicure, það var mjög gaman haha, svo fórum við aðseins að tölta í búðum, en ég verlsaði samt ekkert. Svo fórum við heim og ég man ekki hvað við gerðum um kvölð annað en að bara borða kvöldmat, og ég gaf þeim gjafir frá íslandi sem þau voru mjög ánægð með svo fóru þau að sofa ég fór að horfa á The Emmies! :D


Mánudagur.

Það fóru allir í vinnuna og skólann nema ég og alex, alex var veik svo við vorum heima að chilla saman, nema svo skrapp ég aðeins á laugarveginn (walnut street) að skoða mig um. svo um hálf 4 kom manneskja frá AFS og við fórum út að borða og tala um allskonar hluti, svo kom ég heim og nágranninn kom til okkar í heimsókn að spjalla, svo fóru ég og host mamma mín í göngurút og fórum í matvöruverslun að kaupa einhvað sem henni vantaði í matinn. svo um kvöldið spiluðum við einhvað spil sem eitir DOMINO það var mjög gaman,

Þriðjudagur.

það voru allir heim nema host pabbi minn, því þriðjudag og miðvikudag var einhver gyðingarhátið, og ég og host mamma mín og host btóðir minn fórum að skrá mig í skólan og þar kom í ljós og mig vantaði 2 sprautur og ég mætti ekki byrja í skólanum fyrr en ég væri búin að fá þær, þannig við eyddum mikið að deginum að reyna komast á einhvað sjúkrahús til að fá þessar sprautur, það var pínu vesen en það gekk allt upp, svo um kvöldið komu amman og afinn í heimsókn að borða mat útaf þessari gyðingahátíð, mér fannst maturinn ekkert sérstakur, en svo um kvöldið  fóru amman, afinn, host mamma og pabbi í kirkju og ég og systir mín horfðum á frumsýningu af serí 2 af New Girl, mér til mikillar gleði, og djöfull sem þessi þáttur var fyndinn! en svo héldum við bara áfram að horfa á sjómnvarpið og svo fór ég bara að sofa.

Miðvikudagur

Var mjög rólegur , eg labbaði sjálf yfir í næsta kverfi ( mjög stolt) haha og þar er enþá stærri verslunargata. En svo kom ég heim og þá kom til mín skiptinemi frá Hollandi og ég ,hann og bróðir hans fórum að borða hádegismat saman, svo fóru þeir heim til sín og ég fór bara að sofa því ég var svo óótrúlega þreytt eftir síðustu daga, en þessi dagur var mjög rólegur, því þau öll í fjölsildunni voru að festa (borða ekkert) og fara i krikju og einhvað út af þessari hátíð, ég fann mér bara einhvað sniðugt að gera á meðann, svo um kvöldið fórum við í matarboð, þau vorum búin að sega mér að við værum að fara í matarboð til systur host pabba míns, og að amman og afinn væru þar, ég ég bjóst bara við littlu matarboði en nei í fyrsta lagi þegar við keyðum upp að blokkinni þeirra, sem ég helt fyst að væri hótel því hun er svo flott, svo þegar við komum inn þá er þetta bara RISA partý, hálfgert ættarmót, ótrúlega flott, riiisa stór íbúð, þjónar að labba á milli fólks að fylla á glös, svo bar bar þarna sem hægt var að fá sér drykk, ég freistaði nú samt ekki gæfunar, hélt mig bara í vatninu. En mér fannst þetta frekar óþæginlegt því það voru allir að stara á mig og sumir komu til að tala við mig, svo heyrði fólk svona kvísla í hverju horni, heyrði stundum einhvað fólk vera tala saman og eina sem ég heyrði var bara "iceland" svo kom fólk upp að mér og vissi alltíeinu alveg hver ég var og byrjði einhvað að spjalla. En svo fórum við heim og ég gerði mig til fyrir fyrsta skóladaginn minn fór svo bara að sofa.

Fimmtudagur

Fyrsti skóladagurinn minn, shit hann var skrautlegur! mamma mín fór með mér og fyrsta sem ég sá þegar ég labbaði inn var tollgæsla, svona eins og á flugvellum, þurfti að fara í gegnum skanna, og la´ta skoða í veskinu mínu, ferkar furðulegt! en svo fórum við til einhvers á skrifstofu til að velja tímanna mína, fékk svo stundaskránna í hendurnar og mér var fylgt í fyrsta tímann minn, allir störðu á mig frekar óþæginlegt, en ég sat bara þarna og gerði ekkert, svo gékk skóladagurinn eiginlega bara út á það að reyna rata, skólinn er svona 5 x FNV ef ekki stærri, með 1400 nemendur, og ég hafði 5 mínótur til að koma mér í næstu stofu, en týmarnir eru bara 40 mín þannig þeir eru mjög fljótir að lýða.Svo kom ádegi, og matsalurinn er RISA stór, ég var þarna ein að ráfa um, þangað til að ég lét mig hafa það og sast bara á einhvað tómt borð þarna, svo eftir smá stund koma 6 svarar stelpur og 1 strákur bara " Giiirl are ypu knew here?" og ég bara "yes" þá kom strákurinn bara " i knew it, aint no white girl sitting on the Ghetto table if she knew, but its good u can sit with us" eg bara shit hvað er ég búin að koma mér í, sat þarna á milli þeirra, en þau voru rosalega næs, og spjölluðu við mig. Svo kom einvher stelpa upp að mér sem er með mér í ensku og sagði að eg ég myndi vilja þá mætti ég sitja hjá þeim éf ég vildi en mér fannst svo dónalegt að fara bara þannig ég sat bara þarna og sagði að ég kæmi kanski bara á morgun. svo þear matsalurinn byrjaði að fyllast tók ég eftir því að hann er skiptur til helmings, svart fólk öðru meginn og hvítt hinumegin, mér fannst það mjög skrítið, og auðvitað þurfi ég að setjast á eina svarta borðið sem var þeim megin sem hvíta fólkið var, en þetta reddaðist allts saman allir voru voða næs, svo sem það leið á hádegið þá byrjaði svarta fólkið að dansa í vina hring og singja og klappa höndonum og einhvað á meðan, og svo voru líka einhverjir að tala í míkrafón og sega öllum að kjósa sig sem forsetta.. ég er að sega ykkur það að þetta var bara alveg eins og í bíómynd! en svo átti ég tvo tíma eftir hádegi , sálfæði og ameríska sögu svo sótti host mamma mín mig í skólann og ég kom heim , skypaði við mömmu og pabba og er núna að skrifa þetta blogg, ég veit ekki hvað ég er að fara gera um helgina en það kemur bara í ljós seinn, ég er búin á því eftir daginn, helf ég fari bara snemma að sofa,

þangað til næst

Ísabella :)

ps. sorry með stafsetningavillur þetta er svo langt að ég nenni ekki að laga,

1 comment:

  1. Hahahahaha er svo mikid ad dyrka ad hu sert med ghetto lidinu a bordi :D gott ad thu lentir hja sæmilegri fjolskyldu :D eg er btw sjuklega abbó utaf frumsyningu new girl langar svo ad sja :( en ja gott ad heyra ad ter gengur vel og hlakka til ad heyra meira fra ter :D
    elska tig ut ad lifinu:**

    p.s. Bokin er gedveik er ad slita af mer andlitid ur spenningi yfir teirri næstu :D

    ReplyDelete